Maud Plener, sem heldur um taumana í vínhúsi Jean Plener, er sjöundi ættliður víngerðarmanna í fjölskyldunni. Vínekrurnar liggja við þorpið Bouzy sem er í suðurhlíðum “fjallsins” sem er á milli Reims og Epernay. Aðstæður til vínræktar eru með allra besta móti og þorpið Bouzy er eitt af 17 Grand Cru-þorpum í Champagne (vínekrurnar við Bouzy og Ambonnay þykja með þeim allra bestu í Champagne). Vínekrur Jean Plener ná yfir 5,5 hektara – 70% eru Pinot Noir og 30% Chardonnay. Þegar vínið er komið á flöskur er það lagt til hvíldar í kjallaranum sem afi Maud gróf undir húsið þeirra. Í kjallaranum er ávallt 10-12 °C sem er fullkomið til að geyma vínin. Þó svo að lágmarks geymslutími kampavína eru 15 mánuðir þá eru vínin frá Jean Plener látin liggja í að minnsta kosti 4 ár og þroskast.
Allt víngerðarferlið hjá Jean Plener miðast við sjálfbærni og umhverfisvernd – skordýraeitur eru ekki notuð og súlfíðnotkun er haldið í algjöru lágmarki.
Lúxusvín ágústmánaðar er Grand Cru kampavín frá Jean Plener, gert úr Pinot Noir (70%) og Chardonnay (30%). Vínið er látið hvíla í 5-6 ár áður en botnfallið er skilið frá og korktappinn settur í.
Sykurmagnið í víninu er 6,4 g/L og það er því Brut.
Þetta vín er ákaflega matarvænt og við mælum með að þið prófið það með kjúklingi í rjómasósu eða grilluðum risarækjum með hvítlauk og chili.
Hráefni:
Aðferð:
Hitið olíu á stórri steikarpönnu yfir miðlungshita. Bætið við hvítlauk, lárviðarlaufi og chili-flögum og steikið í 2-3 mínútur.
Bætið þessu næst við risarækjunum, saltinu og piparnum og steikið í ca 4-5 mínútur
Í lokin er skvettu af sherry og sítrónusafa bætt við og steinseljunni stráð yfir.
Berið fram með t.d.súrsætri sósu, hvítlauks-aioli og snittubrauði.
Njótið með Jean Plener Grand Cru Cuvée Réservée Brut