Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í febrúar 2026

Lúxusvín mánaðarins í febrúar 2026 er Duménil Les Pêcherines Vieilles Vignes Premier Cru

Champagne Dumenil er fjölskyldurekið hús í sem stofnað var árið 1874 í Chigny-les-Roses, í hjarta Montagne de Reims, þar sem Pinot Noir og Pinot Meunier fá einstaklega góð skilyrði. Húsið hefur verið rekið af sömu fjölskyldu í fimm kynslóðir. Í dag stýra henni Frédérique og Hugues Poret-Dumenil, sem leggja áherslu á hefðbundna handverksvinnu, nákvæma vínrækt og gæði.  Fyrir 10 árum fluttu þau sig yfir til Sacy þar sem nýtt víngerðarhús af fullkomnustu gerð var tekið í notkun.

Þorpið Chigny-les-Roses er rétt fyrir sunnan borgina Reims, sem er höfuðstaður Champagne-héraðsins.  Þrúgan Meunier hefur löngum verið ráðandi í Chigny-les-Roses, en Cécile Dumenil, amma Frédérique, vildi rækta Chardonnay til að geta búið til árgangsvín sem gætu þroskast í langan tíma.  Hún valdi Premier Cru-vínekruna „Les Pêcherines“ og árið 1969 gróðursetti hún þar Chardonnay-vínvið sem í dag gefur af sér þrúgur sem m.a. fara í vínið sem við færum ykkur nú. Nafn vínekrunnar vísar til ferskjutrjáa sem þarna voru þegar svæðið var í eigu Saint-Remi klaustursins.  Auk Chardonnay (80%) er vínið gert úr Pinot Noir-þrúgum (20%) sem koma af vínekrunni „Dessous le Mont“ sem einnig flokkast sem Premier Cru.

Lúxusvín febrúarmánaðar 2026 er Duménil Les Pêcherines Vieilles Vignes Premier Cru.  Það er eins og áður segir gert úr þrúgunum Chardonnay (80%) og Pinot Noir (20%).  Vínið er látið hvíla og þroskast í fimm ár í kjallara Duménil áður en botnfallið er skilið frá og korktappinn settur í flöskurnar.  Eftir það fær vínið að hvíla í minnst 6 mánuði áður en það fer í sölu.  Vínviðurinn sem gefur af sér þrúgurnar sem fara í þetta vín er að jafnaði meira en 50 ára gamall og nafnbótinni Vieilles Vignes (gamall vínviður) því bætt við nafn vínsins.

Sykurmagnið í víninu er um 8 g/L og það flokkast því sem Brut.

Vínið er auðvitað dásamlegt eitt og sér en við mælum með að þið prófið það með hörpuskel eða risotto.