Vínhús Hervieux-Dumes er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1920. Henri Hervieux var í franska hernum í fyrri heimstyrjöldinni og var sendur til Champagne. Þar kynntist hann Juliette Dumez, en fjölskylda hennar hafði lengi stundað vínrækt í Sacy. Þau giftust og stofnuðu eigið vínhús árið 1920. Í dag sér fjórði ættliður fjölskyldunnar – Laurent, Clément og Timothée – um reksturinn og býflugurnar! Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni í ræktuninni og reynt að stuðla að fjölbreyttu lífríki á vínekrunum. Skordýraeitur eru ekki notuð heldur notast við náttúrulegar aðferðir til að vinna á skaðvöldum á borð skordýr. Býflugnabú er víða að finna á vínekrunum og við getum vottað að hunangið þeirra er dásamlegt!
Vínekrur Hervieux-Dumez, sem alls ná yfir tæplega 10 hektara, eru staðsettar við þorpin Sacy, Chamery, Ecueil og Ville-Domange – allt premier cru-þorp sem liggja hlið við hlið í norðvestur-horni Montagne de Reims.
Flestir kampavínsframleiðendur gera „signature“-vín – ekki endilega þeirra dýrasta vín heldur vínið sem er einkennisvín þeirra – stolt hússins – og við eigum að geta gengið að gæðunum vísum.
Lúxusvín marsmánaðar er einkennisvín Hervieux-Dumez – Premier Cru Brut Reserve. Það er gert úr þrúgunum Pinot Noir (45%), Chardonnay (30%) og Meunier (25%), þar sem helmingurinn er uppskera ársins en hinn helmingurinn er fenginn úr „varavíni“ hússins. Að lokinni seinni gerjun er vínið látið hvíla í 3-4 ár í kjallara Hervieux-Dumez (elsti hluti kjallarans er frá 17. öld!).
Sykurmagnið í víninu er 9 g/L og það flokkast því sem Brut.
Vínið fer ákaflega vel með ostabakkanum, en við mælum líka með því að njóta þess með klausturbleikju.

Hráefni:
Aðferð:
Njótið með Hervieux-Dumez Premier Cru Brut Reserve!