Lúxusvín maímánaðar kemur frá fjölskyldufyrirtæki Sadi Malot. Vínhúsið var stofnað af Socrate Malot, en hann nefndi fyrirtækið eftir Sadi bróður sínum, sem fæddist daginn sem Sadi Carnot forseti Frakklands var myrtur. Sadi lést á vígvellinum í fyrri heimsstyrjöldinni. Í dag er það fimmta kynslóð Malot-fjölskyldunnar sem annast vínekrurnar sem eru við þorpin Villers-Marmery og Verzy, rétt sunnan við borgina Reims.
Vínekrurnar við Villers-Marmery flokkast sem Premier Cru en vínekrurnar við Verzy eru flokkaðar sem Grand Cru.
Lúxusvín maímánaðar 2026 kallast Les 2 Cépages eða Þrúgurnar tvær. Þrúgurnar sem fara í þetta vín koma allar af Grand Cru-vínekrum Sadi Malot í Verzy. Þrúgurnar sem hér um ræðir eru auðvitað Chardonnay (60%) og Pinot Noir (40%). Helmingur vínsins er úr uppskeru ársins 2022 sem var látinn gerjast í stáltönkum, en hinn helmingurinn kemur úr árgangablöndu (“Solera”) sem hófst árið 1982. Að lokinni blöndun var vínið sett á flöskur og seinni gerjunin sett af stað. Flöskurnar fengu svo að hvíla í 3 ár í kjallara Sadi Malot áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í.
Árlega eru gerðar um 20.000 flöskur af þessu víni.
Viðbætt sykurmagn í víninu er 1,8 g/L og vínið er því Extra Brut.
Vínið nýtur sín að sjálfsögðu vel eitt og sér, en við mælum með að þið prófið það með forréttum á borð við Blinis með reyktum laxi og/eða kavíar.

Njótið með Sadi Malot Les 2 Cépages Grand Cru!