Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í maí 2026

Lúxusvín mánaðarins í maí 2026 er Sadi Malot Les 2 Cépages Grand Cru

Lúxusvín maímánaðar kemur frá fjölskyldufyrirtæki Sadi Malot. Vínhúsið var stofnað af Socrate Malot, en hann nefndi fyrirtækið eftir Sadi bróður sínum, sem fæddist daginn sem Sadi Carnot forseti Frakklands var myrtur. Sadi lést á vígvellinum í fyrri heimsstyrjöldinni. Í dag er það fimmta kynslóð Malot-fjölskyldunnar sem annast vínekrurnar sem eru við þorpin Villers-Marmery og Verzy, rétt sunnan við borgina Reims.

Vínekrurnar við Villers-Marmery flokkast sem Premier Cru en vínekrurnar við Verzy eru flokkaðar sem Grand Cru.

Lúxusvín maímánaðar 2026 kallast Les 2 Cépages eða Þrúgurnar tvær.  Þrúgurnar sem fara í þetta vín koma allar af Grand Cru-vínekrum Sadi Malot í Verzy.  Þrúgurnar sem hér um ræðir eru auðvitað Chardonnay (60%) og Pinot Noir (40%).  Helmingur vínsins er úr uppskeru ársins 2022 sem var látinn gerjast í stáltönkum, en hinn helmingurinn kemur úr árgangablöndu (“Solera”) sem hófst árið 1982. Að lokinni blöndun var vínið sett á flöskur og seinni gerjunin sett af stað.  Flöskurnar fengu svo að hvíla í 3 ár í kjallara Sadi Malot áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í.

Árlega eru gerðar um 20.000 flöskur af þessu víni.

Viðbætt sykurmagn í víninu er 1,8 g/L og vínið er því Extra Brut.

Vínið nýtur sín að sjálfsögðu vel eitt og sér, en við mælum með að þið prófið það með forréttum á borð við Blinis með reyktum laxi og/eða kavíar.

Blinis með reyktum laxi

Innihald:
  • 120g hveiti
  • 1 msk lyftiduft
  • 1 egg
  • 180mL mjólk
  • 1 msk bráðið smjör
  • salt á hnífsoddi

  • reyktur lax
  • ferskt dill
  • sýrður rjómi
Aðferð:
  • Blandið fyrst þurrefnunum saman. Í öðru íláti hrærið þið svo saman egginu, mjólkinni og smjörinu.
  • Þessu næst hrærið þið saman þurru og fljótandi og látið hvíla í 10-15 mínútur. Þá er deigið tilbúið.
  • Steikið síðan á miðlungsheitri pönnu, 1 matskeið í einu, u.þ.b. 1-2 mínútur á hvorri hlið. Skonsurnar eiga að verða gullnar og girnilegar og nægilega stórar til að gleypa í einum munnbita.
  • Í lokin skellið þið u.þ.b. 1 matskeið af sýrðum rjóma á hverja skonsu, þá litlum bita af reyktum laxi og garnerið með dillbleðli.  Einnig er hægt að notast við kavíar í staðinn fyrir reykta laxinn.

Njótið með Sadi Malot Les 2 Cépages Grand Cru!