Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í janúar 2026

Lúxusvín mánaðarins í janúar 2026 er Alfred Tritant Mon Essentiel Extra Brut

Alfred Tritant fæddist árið 1906, sonur vínbænda í þorpinu Bouzy og lærði handverkð af föður sínum. Árið 1930 varð mikill samdráttur í sölu kampavína í kjölfar efnahagskreppunnar miklu sem skall á árið áður.  Stóru kampavínsframleiðendurnir gátu ekki keypt þrúgurnar af bændum sem ræktuðu fyrir stóru húsin.  Sumir bændur völdu að stofna samvinnufélög um víngerð til að nýta uppskeruna.  Alfred Tritant, þá 24 ára gamall, kaus hins vegar að stofna sína eigin víngerð.  Alfred reyndist lunkinn við víngerðina, vínin vöktu athygli og unnu til verðlauna á sýningum.

Dæturnar Claudine og Dominique komu ungar inn í víngerð fjölskyldunnar og tóku alveg við keflinu þegar Alfred settist helgan stein árið 1980.  Claudine lést 1994 og Dominique tók þá við rekstrinum.  Jean-Luc, sonur Dominiqe, kom svo inn í starfið árið 2000 og tók alveg við af móður sinni árið 2008.

Jean-Luc vildi huga að umhverfinu og bæta víngerðina.  Hann dró úr notkun skordýraeitra og færði sig smám saman yfir í lífræna vínræktun.  Frá árinu 2023 er öll vínræktunin oog framleiðslan lífrænt vottuð.  Vínhús Alfred Tritant á 3 hektara af vínekrum við Grand Cru-þorpin Bouzy og Ambonnay – 2/3 eru Pinot Noir og 1/3 eru Chardonnay.  Ársframleiðslan er um 25.000 flöskur.

Fyrsta lúxusvín okkar árið 2026 er Alfred Tritant Mon Essentiel Extra Brut.  Vínið er gert úr þrúgunum Pinot Noir (2/3) og Chardonnay (1/3) þar sem helmingur vínsins kemur af uppskeru ársins 2019 og helmingurinn úr ”varavíni” Alfred Tritant (”solera”-árgangablanda).  Vínið fékk tæplega 5 ára hvíld í kjallaranum áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í.

Sykurmagnið í víninu er um 4 g/L og það er því Extra-Brut.

Vínið nýtur sín sérstaklega vel með sjávarréttum á borð við ostrur og túnfisk, en fer líka vel með ferskum ostum.  Svo er það auðvitað dásamlegt eitt og sér!