Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í júlí 2026

Lúxusvín mánaðarins í júlí 2026 er Domaine Méa l’Assemblage Premier Cru

 
 

 

 

Þorpið Louvois skammt frá Reims á sér langa sögu sem nær aftur til fyrri hluta 13. aldar. Á 17. öld byggði Margreifinn af Louvois mikinn kastala sem síðar komst í eigu dætra Lúðvíks 16. Frakkakonungs. Kastalinn, sem státaði af 50 hektara garði með tjörnum og gosbrunnum, var almennt kallaður Château des Dames de France og gekk undir því nafni þar til hann var eyðilagður eftir frönsku byltinguna.  Síðar var þar byggður nýr kastali, öllu minni, með ”aðeins” 35 hektara garði sem er að mestu skógi vaxinn.  Sá kastali er nú í eigu kampavínshúss Laurent Perrier.

Louvois er eitt hið minnsta af þeim 17 þorpum sem bera titilinn Grand Cru.  Þar stofnaði Gilbert Méa vínhús fyrir rúmum 100 árum og nú er það fimmta kynslóð fjölskyldunnar sem annast viðgerðina hjá Domaine Méa – Sophie og Franck eiginmaður hennar. Fjölskyldan á vínekrur í 3 Grand Cru-þorpum (Louvois, Bouzy og Mailly) og í 6 Premier Cru-þorpum.  Umhyggja fyrir náttúrunni er þeim ofarlega í huga og Domaine Méa er að vinna að því að fá víngerð sína viðurkennda sem lífræna.

Pinot Noir er ráðandi á vínekrum Domaine Méa (rúm 70%) en einnig eru ræktaðar Chardonnay-þrúgur (20%) og Meunier (rúm 8%).

Lúxusvín mánaðarins í júlí 2026 er Domaine Méa l‘Assemblage Premier Cru. Vínið er gert úr þrúgunum Pinot Noir (72%) og Chardonnay (28%) sem koma af Premier Cru-vínekrum fjölskyldunnar.  Hluti vínsins (um 15%) er látið þroskast á eikartunnum áður en lokablöndun á sér stað og vínið sett á flöskur fyrir seinni gerjun.  Það er svo látið hvíla í rúm 2 ár í kjöllurum Domaine Méa áður en botnfallið er fjarlægt og korktappinn settur í.

Sykurmagnið er 3 g/L og vínið flokkast því sem Extra Brut.

Vínið nýtur sín vel sem fordrykkur en hentar einnig með sjávarréttum og ostum. Við mælum með að prófa það með smjörsteiktum þorskhnökkum.