Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í mars 2026

Lúxusvín mánaðarins í mars 2026 er Hervieux-Dumez Premier Cru Brut Reserve

Vínhús Hervieux-Dumes er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1920. Henri Hervieux var í franska hernum í fyrri heimstyrjöldinni og var sendur til Champagne. Þar kynntist hann Juliette Dumez, en fjölskylda hennar hafði lengi stundað vínrækt í Sacy. Þau giftust og stofnuðu eigið vínhús árið 1920. Í dag sér fjórði ættliður fjölskyldunnar – Laurent, Clément og Timothée – um reksturinn og býflugurnar! Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni í ræktuninni og reynt að stuðla að fjölbreyttu lífríki á vínekrunum. Skordýraeitur eru ekki notuð heldur notast við náttúrulegar aðferðir til að vinna á skaðvöldum á borð skordýr. Býflugnabú er víða að finna á vínekrunum og við getum vottað að hunangið þeirra er dásamlegt!

Vínekrur Hervieux-Dumez, sem alls ná yfir tæplega 10 hektara, eru staðsettar við þorpin Sacy, Chamery, Ecueil og Ville-Domange – allt premier cru-þorp sem liggja hlið við hlið í norðvestur-horni Montagne de Reims.

Flestir kampavínsframleiðendur gera „signature“-vín – ekki endilega þeirra dýrasta vín heldur vínið sem er einkennisvín þeirra – stolt hússins – og við eigum að geta gengið að gæðunum vísum.

Lúxusvín marsmánaðar er einkennisvín Hervieux-Dumez – Premier Cru Brut Reserve. Það er gert úr þrúgunum Pinot Noir (45%), Chardonnay (30%) og Meunier (25%), þar sem helmingurinn er uppskera ársins en hinn helmingurinn er fenginn úr „varavíni“ hússins.  Að lokinni seinni gerjun er vínið látið hvíla í 3-4 ár í kjallara Hervieux-Dumez (elsti hluti kjallarans er frá 17. öld!).

Sykurmagnið í víninu er 9 g/L og það flokkast því sem Brut.

Vínið fer ákaflega vel með ostabakkanum, en við mælum líka með því að njóta þess með klausturbleikju.

Klausturbleikja með möndlum, rækjum og sveppum

 
 

 

 

Hráefni:

  • 8 klausturbleikjuflök
  • hveiti
  • smjörklípa
  • salt og pipar

  • 300 grömm smjör
  • 1 dL möndluflögur
  • 2 dL saxaðir sveppir
  • 1 dL söxuð steinselja
  • 1 dL rækjur
  • pipar

Aðferð:

  • Veltið bleikjunni upp úr hveitinu og steikið í smjöri á heitri pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar.
  • Bræðið smjörið í potti við meðalhita, bætið möndlum, sveppum, steinselju og rækjum út í smjörið og blandið.
  • Berið strax fram með bleikjunni ásamt fersku salati
 
 

 

 

Njótið með Hervieux-Dumez Premier Cru Brut Reserve!