Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í september 2026 er Guy de Chassey Cuvée Réservée Nicolas d’Olivet 2020

 
 

 

 

Þorpið Louvois skammt frá Reims á sér langa sögu sem nær aftur til fyrri hluta 13. aldar. Á 17. öld byggði Margreifinn af Louvois mikinn kastala sem síðar komst í eigu dætra Lúðvíks 16. Frakkakonungs. Kastalinn, sem státaði af 50 hektara garði með tjörnum og gosbrunnum, var almennt kallaður Château des Dames de France og gekk undir því nafni þar til hann var eyðilagður eftir frönsku byltinguna.  Síðar var þar byggður nýr kastali, öllu minni, með ”aðeins” 35 hektara garði sem er að mestu skógi vaxinn.  Sá kastali er nú í eigu kampavínshúss Laurent Perrier.

Andspænis kastalanum er vínhús Guy de Chassey sem nú er undir stjórn sjöunda ættliðs de Chassey-fjölskyldunnar – Ingrid de Chassey, sem nýtur aðstoðar móður sinnar Marie. Vínekrurnar við Louvois flokkast sem Grand Cru, en Louvois er eitt af 17 þorpum í Champagne sem eru flokkaðar sem Grand Cru.  Vínekrur Guy de Chassey ná yfir 9,5 hektara, þar sem 75% vínviðarins er Pinot Noir og 25% Chardonnay.

Ingrid og Marie leitast við að hafa alla víngerðina sjálfbæra og umhverfisvæna, og vínhús Guy de Chassey er viðurkennt sem Haute Valeur Environnemental (HVE).  Þrúgurnar eru pressaðar í viðarpressu og vínin gerjuð í hitastýrðum stáltönkum.  Þegar kemur að því að snúa flöskunum á hvolf til að losna við botnfallið (remuage) er það gert á gamla mátann með handafli.

Lúxusvín septembermánaðar er Cuvée Réservée Nicolas d‘Olivet 2020 – árgangsvín gert úr þrúgunum Pinot Noir (60%) og Chardonnay (40%). Eftir seinni gerjun fékk vínið að hvíla í 4 ár áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í.

Viðbættur sykur er um 8 g/L og vínið er því brut.

Þetta vín fer ákaflega vel með sjávarréttum af ýmsu tagi og við mælum með að njóta þess með smjörsteiktri lúðu með blaðlauk, sveppum og kampavínssósu.

Smjörsteikt lúða með blómkálsmauki, möndlum og kampavínssósu

Hráefni

Fiskur

  • 700–800 g lúðuflök, roð- og beinlaus
  • Salt og hvítur pipar
  • 1 msk ólífuolía
  • 30 g smjör
  • 1 grein timjan

Blómkálsmauk

  • 1 meðalstórt blómkál
  • 200 ml rjómi
  • 100 ml mjólk
  • 25 g smjör
  • Salt
  • Örlítið múskat

Kampavíns- og smjörsósa

  • 1 skalottlaukur, mjög smátt saxaður
  • 150 ml þurrt kampavín eða annað þurrt freyðivín
  • 100 ml fisksoð
  • 100 ml rjómi
  • 80 g kalt smjör, skorið í teninga
  • 1 tsk sítrónusafi
  • Salt og hvítur pipar

Til að ljúka réttinum

  • 40 g möndluflögur
  • 2 msk kapers, þurrkaðar
  • 40 g smjör
  • Fersk steinselja eða kerfill
  • Fínt rifinn sítrónubörkur

Aðferð

Skerið blómkálið í bita og setjið í pott ásamt rjóma og mjólk. Sjóðið varlega undir loki í 15–20 mínútur, þar til blómkálið er alveg mjúkt. Hellið hluta vökvans frá og geymið. Maukið blómkálið með smjörinu þar til það er silkimjúkt. Þynnið eftir þörfum með soðvökvanum og kryddið með salti og örlitlu múskati.

Setjið skalottlauk, freyðivín og fisksoð í lítinn pott. Látið sjóða niður þar til um þriðjungur er eftir. Bætið rjómanum út í og sjóðið áfram þar til sósan þykknar lítillega. Lækkið hitann og pískið köldu smjörinu saman við, einum teningi í einu. Sósan má ekki sjóða eftir að smjörið fer út í. Bragðbætið með sítrónusafa, salti og hvítum pipar.

Ristið möndluflögurnar á þurri pönnu og leggið til hliðar. Bræðið 40 g af smjöri á sömu pönnu og látið það brúnast. Bætið kapers út í og steikið í um eina mínútu. Takið af hitanum og blandið möndlunum saman við.

Skerið lúðuna í fjóra jafna bita og kryddið. Hitið olíu á pönnu og steikið fiskinn við meðalháan hita í um þrjár mínútur á fyrri hliðinni. Snúið honum, bætið smjöri og timjani á pönnuna og ausið smjörinu yfir í tvær til þrjár mínútur. Fiskurinn á að vera rétt eldaður og safaríkur í miðjunni.

Setjið blómkálsmauk á diska, lúðuna ofan á og sósuna í kring. Dreifið möndlum og kapers yfir og ljúkið með steinselju eða kerfli og örlitlum sítrónuberki.

Berið fram með Guy de Chassey Nicolas d’Olivet 2020.  Berið kampavínið fram við um 10-11°C – ekki alveg ískalt (takið út úr kælinum 15-20 mínútum áður en maturnn er borinn fram).