Copied to clipboard

Vín mánaðarins í ágúst 2026 er André Chemin Lightbreaker Brut

André og Micheline Chemin stofnuðu vínhús sitt árið 1948 og hafa frá upphafi verið hluti af samvinnufélagi kampavínsbænda í þorpunum Sacy og Écueil, sem var stofnað sama ár.  Samvinnufélagið leggur til þrúgupressu og átöppunarvél, ásamt því að eiga víntanka sem bændur geta notað.  Nú eru það barnabarnið og Íslandsvinurinn Sebastian sem sér um framleiðsluna ásamt Evu eiginkonu sinni.

Vínekrur Andé Chemin liggja flestar við þorpið Sacy, skammt frá borginni Reims.  Vínekrurnar ná yfir alls 6,5 hektara þar sem Pinot Noir er ráðandi (4 hektarar), en einnig eru ræktaðar Chardonnay- og Meunier-þrúgur.  Hluti vínekranna eru við nágrannaþorpin Pargny-Lés-Reims, Ville-Dommange og Les Mesneux.

Lúxusvín mánaðarins í ágúst 2026 er André Chemin Lightbreaker Brut.  Vínið er gert úr þrúgunum Pinot Noir (80%) og Chardonnay (20%), þar sem 2/3-hlutar eru úr uppskeru ársins 2021 en 1/3 kemur úr varavíni André Chemin.  Vínið er látið hvíla í minnst 4 ár áður en botnfallið er skilið frá og korktappinn settur í.  Fyrir seinni gerjun var vínið látið gangast undir s.k. malolaktíska umbreytingu (hluti af eplasýrunni breytist í mjólkursýru sem gefur víninu aðeins smjörkennda áferð).

Sykurmagnið í víninu eru 3 g/L og það gæti því flokkast því sem Extra Brut en Eva og Sebastian hafa engu að síður valið að kalla vínið Brut (vín sem eru Brut geta haft sykurmagn á bilinu 0-12 g/L).

Vínið nýtur sín ljómandi vel eitt og sér en hentar líka vel með ostum og sjávarréttum.