Copied to clipboard

Lúxusvín mánaðarins í apríl 2026

Lúxusvín mánaðarins í mars 2026 er Mulette-Corbon Millésime Brut 2019

Áin Marne á upptök sín í austurhluta Frakklands. Hún liðast um fallegar sveitir Marne-dalsins áður en hún rennur að lokum saman við ána Signu á leið til sjávar. Marne-dalurinn á sér blóðuga sögu, því þarna féll um hálf milljón ungra manna í mikilli orrustu í september 1914 við upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar. Marne-dalurinn er líka stærsta vínræktarhéraðið í Champagne og þarna er þrúgan Meunier ráðandi ávínekrunum.

Þrúgan Meunier hefur lengst af staðið í skugga Chardonnay og Pinot Noir. Meunier þýðir smiður, og það nafn er vel við hæfi því Meunier gefur ungum kampavínum meiri fyllingu og “byggir þau upp”.

Við þorpið Cerseuil rækta systurnar Elodie og Geraldine Mulette vínvið á rúmum 6 hektörum – að mestu leyti Meunier en einnig Chardonnay. Helming uppskerunnar selja þær til vínhúss Pol Roger. Úr hinum helmingnum gera þær kampavín undir merkjum Mulette-Corbon sem foreldrar þeirra stofnuðu árið 1992. Flest vínin eru blöndur Meunier og Chardonnay, en þær gera líka hreint Meunier- kampavín.

Lúxusvín aprílmánaðar er Mulette-Corbon Brut Millesime 2019. Vínið er gert úr þrúgunum Meunier (50%) og Chardonnay (50%). Að lokinni seinni gerjun fékk vínið að hvíla í 36 mánuði áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í. Þá fékk það aðra 6 mánuði í hvíld áður en fyrstu flöskurnar fóru úr kjallaranum.

Sykurmagnið í víninu er 6 g/L og vínið er því Brut.

Vínið er dásamlegt eitt og sér, en við mælum líka með að prófa það með Quiche Lorraine

Quiche Lorraine

Hráefni:

  • 1 stk pædeig (fæst í betri verslunum)
  • 1-2 hvítlauksrif, rifin eða fínt skorin
  • Klípa af smjöri
  • 1/2 laukur, fínt skorinn
  • 200g flesk (beikon), skorið í teninga
  • 4 egg
  • 300 mL rjómi
  • klípa af salti og pipar
  • 130 g bragðgóður, rifinn ostur, t.d. Gruyére eða Cheddar

Aðferð:

  • Stillið ofn á 200°C.
  • Leggið deigið í hringlaga eldfast mót, þannig að brún deigsins nemi við efri brún mótsins. Gerið nokkur göt í botn deigsins með gaffli, stingið inn i ofn og bakið í ca 10-15 mínútur – eða þangað til það er byrjað að stirðna og taka á sig smá lit.
  • Steikið fleskið upp úr bráðnu smjöri þar til það er orðið gulbrúnt og stökkt, bætið þá lauk og hvítlauk á pönnuna og steikið stutta stund – látið kólna.
  • Hrærið saman eggin og rjómann, saltið og piprið eftir smekk.
  • Dreifið fleski, lauk og hvítlauk jafnt yfir botn deigsins og hellið síðan eggjablöndunni yfir.
  • Dreifið rifnum osti yfir í lokin
  • Skellið herlegheitunum í 200°C heitan ofninn og bakið í 35-40 mínútur eða þar til toppurinn er gullinn og fallegur.

Njótið með Mulette-Corbon Millésime Brut 2019 ásamt salati að ykkar smekk – og auðvitað baguette!